Eigið fé

SAFÍR20

Fjármálastofnun

Áttu 10? Þá getur þú eignast heimili

SAFÍR20 er ný lausn sem hjálpar þér að komast inn á fasteignamarkaðinn. Þú leggur fram a.m.k. 10% af kaupverði og SAFÍR20 leggur til allt að 20% á móti. Þannig auðveldar SAFÍR20 þér að standast greiðslumat fyrir 70% láni og eignast heimili.

Það gefur kaupendum tækifæri á að eignast íbúð fyrr, án þess að þurfa að safna fyrir hærri útborgun. Fjármögnun með SAFÍR20 hentar bæði fyrstu kaupendum og þeim sem vilja stækka eða minnka við sig.

Svona virkar SAFÍR20

SAFÍR20 gildir fyrir nýjar íbúðir á Orkureitnum

SAFÍR20 styður við kaup á íbúðum á Orkureitnum. Framlagið er 20% af kaupverði fasteignarinnar og fyrir afnot af eignarhlut SAFÍR20 greiðir kaupandi fasta mánaðarlega leigu samkvæmt leigusamningi. SAFÍR20 verður meðeigandi að íbúðinni en kaupandi hefur þó 100% umráðarétt yfir eigninni.

Á Orkureitnum verða byggðar yfir 400 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Byrjað var að afhenda fyrstu íbúðir haustið 2024 og stefnt að því að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið 2028.

Skoða íbúðir í boði

Þrjú einföld skref

Finndu rétta heimilið fyrir þig/ykkur

Veldu íbúð á Orkureitnum sem hentar þér. Fasteignasali aðstoðar við að skoða fjármögnunina, útborgunina þína og framlag SAFÍR20. Þegar allt er komið á hreint leggur þú fram kauptilboð.

Fjármögnun og
samningar

Þegar kauptilboð er samþykkt fer lánveitingin fram hjá þinni lánastofnun. Samhliða kauptilboði eru gerðir sameignar- og leigusamningur ásamt nauðsynlegum viðaukum. Fasteignasali sér um ferlið. SAFÍR20 heldur sínum eignarhlut, allt að 20%, í 3–10 ár.

Afhending eignar og
afsal

Þegar öll skilyrði eru uppfyllt og afsal undirritað, verður þú formlegur eigandi ásamt SAFÍR20. Þú hefur fullan ráðstöfunarrétt yfir eigninni og getur hvenær sem er á samningstímanum selt eignina, leigt hana út eða keypt út hlut SAFÍR20.

Dæmi um útreikninga

Breyting yfir 10 ára tímabil: Dæmi 1 Dæmi 2 Dæmi 3
Breyting vísitölu neysluverðs á hverju ári 4,00% 6,00% 3,00%
Breyting fasteignaverðs á hverju ári 5,50% 3,50% -1,00%
Áhrif:
Virði fasteignar í upphafi tímabils 70.000.000 kr. 70.000.000 kr. 70.000.000 kr.
Virði fasteignar í lok 10 ára tímabils 119.570.112 kr. 98.741.913 kr. 63.306.745 kr.
Eftirstöðvar íbúðarláns í lok tímabils 53.438.082 kr. 64.651.130 kr. 48.516.528 kr.
Eigið fé viðskiptavinar í lok tímabils 42.218.008 kr. 14.342.400 kr. 2.128.868 kr.

Meðfylgjandi eru dæmi sem sýna hvernig mánaðarleg leiga og eignarhlutur kaupanda geta þróast yfir 10 ára tímabil, miðað við eftirfarandi forsendur:

  • Kaupverð íbúðar: 70.000.000 kr.
  • Eignarhlutur SAFÍR20: 20% eða 14.000.000 kr.
  • Eignarhlutur kaupanda: 80% eða kr. 56.000.000 kr.
    • Þar af eigið fé: 7.000.000 kr.
    • Verðtryggt íbúðalán: 49.000.000 kr., til 25 ára, með jöfnum greiðslum og 4.79% vöxtum.*
  • Grunnleiga: 55.000 kr. á mánuði (660.000 kr. á ári), verðtryggð.**
  • Samningstími: 10 ár (sameignar- og leigusamningur)
  • Miðað er við vísitölu neysluverðs.
  • Gert er ráð fyrir óbreyttum vöxtum á láninu yfir allt 10 ára tímabililð.***

*  Vextir íbúðalána eru almennt breytilegir og geta verið hærri eða lægri en forsendur dæmanna.
** Leiguverð ræðst af stærð og staðsetningu íbúðar og getur verið frábrugðið dæminu.
*** Breytingar á vöxtum til hækkunar eða lækkunar á tímabilinu hafa áhrif á niðurstöður dæmanna.

Viltu nánari upplýsingar?

Ertu með spurningu? Fylltu út formið og við höfum samband.

Skráðu þig hér:

Viltu nánari upplýsingar?

This field is for validation purposes and should be left unchanged.

Einnig er hægt að hafa samband við fasteignasala til að fá ráðgjöf og nánari upplýsingar.

Lágmúla 4, 108 Reykjavík
Sími 569 7000
miklaborg@miklaborg.is

Grensásvegur 11. 108 Reykjavík
Sími 588-9090
eignamidlun@eignamidlun.is

SAFÍR20 í stuttu máli

  • Samningstími: 3–10 ár.
  • Kaupandi greiðir 10% útborgun og SAFÍR20 leggur til 20% á móti og verður meðeigandi að íbúð.
  • Lægri fjárhæð fasteignaláns og fastar mánaðarlegar leigugreiðslur fyrir hlut SAFÍR20.

Það er komið að þér að eignast íbúð

Með SAFÍR20 færð þú tækifæri til að eignast íbúð án þess að þurfa að safna fyrir hærri útborgun. SAFÍR20 hentar bæði fyrstu kaupendum og þeim sem vilja stækka eða minnka við sig.

Með SAFÍR20 lækkarðu mánaðarlega greiðslubyrði sem gefur einnig svigrúm til að nýta eigið fé á annan hátt.


Nýttu meðbyrinn og kauptu þína eigin íbúð.

Skoða íbúðir í boði

Minna eigið fé bundið í fasteign

SAFÍR20 getur einnig hentað þeim sem vilja binda minna eigið fé í eign og lækka lántöku.

SAFÍR20 er þannig góð leið til að auka fjárhagslegt svigrúm og tryggir fólki um leið góða íbúð með skynsamlegri fjárfestingu.

Aparta

Eftir að fasteignakaup hafa átt sér stað geta kaupendur verið í samskiptum við Aparta um allt er snýr að daglegum rekstri en Aparta er þjónustu- og rekstraraðili fyrir SAFÍR20. Hægt er að hafa samband við Aparta í gegnum vef þeirra www.aparta.is

Skoða vef Aparta

Spurt og svarað

SAFÍR20 er sérstakur sjóður, og um leið ný lausn, sem er til þess fallin að gera aðilum kleift að komast inn á fasteignamarkaðinn með auðveldari hætti. Með SAFÍR20 leggur þú fram a.m.k. 10% af kaupverði íbúðar og SAFÍR20 leggur til allt að 20% á móti. Þannig skiptist eignarhlutur íbúðar á milli kaupanda og SAFÍR20 í sameign, þar til eignahluturinn hefur verið gerður upp, með því að hann er keyptur til baka eða íbúðin seld. Kaupandi hefur þó yfirráð yfir eigninni.
Markmiðið er að gera kaup á íbúð að raunhæfum möguleika fyrir fleiri – á einfaldan, sanngjarnan og öruggan hátt en á sama hátt einnig að fjölga valmöguleikum fyrir þá sem eru nú þegar á fasteignamarkaði.

SAFÍR20 er í boði fyrir íbúðir á Orkureitnum, bæði tilbúnar íbúðir og þær sem eru í byggingu og verða afhentar á næstu misserum, sem byggingaraðili hefur ákveðið að bjóða í þessa leið.

SAFÍR20 hentar einstaklingum sem hafa a.m.k. 10% eigið fé og standast greiðslumat lánastofnana fyrir allt að 70% láni. SAFÍR20 leggur þá til allt að 20% viðbótarfjármögnun og verður meðeigandi íbúðar að því hlutfalli þar til sameignarsamningur er gerður upp.

Kaupandi greiðir mánaðarlega leigu fyrir hlut SAFÍR20 í eigninni. Leigan er ákveðin föst krónufjárhæð sem miðast við framlag SAFÍR20 og er skilgreind í samningi við kaupanda.

Leigan er verðtryggð og ber verðbætur frá gjalddaga, þar til hún er greidd.

SAFÍR20 gerir fasteignakaup aðgengilegri með aukaframlagi sem gerir það að verkum að fleiri ná greiðslumati fyrir 70% láni hjá lánastofnunum. Þannig verður leiðin að heimili einfaldari og skuldir hófstilltari.

  • Kaupandi þarf aðeins 10% eigið fé til að geta fest kaup á íbúð.
  • SAFÍR20 leggur fram allt að 20% af kaupverði.
  • Lánastofnun veitir lán fyrir allt að 70% af kaupverði ef kaupandi stenst greiðslumat.
  • Kaupandi getur einnig lagt fram hærra eigið fé og lækkað þar með skuldir sínar eða minnkað eignarhlut SAFÍR20.

Ef eignin hækkar í verði fær kaupandi ávöxtun af sínum eignarhlut, að frádregnum eftirstöðvum áhvílandi láns. SAFÍR20 fær einnig ávöxtun í samræmi við sinn eignarhlut.

Ef íbúð hefur lækkað í verði þegar hún er seld skiptist tapið á milli kaupanda og SAFÍR20 í samræmi við eignarhlutföll.

SAFÍR20 er verkefni í umsjón Safír Bygginga ehf, sem hafa áratuga reynslu af íbúðabyggingum og fasteignaþróun. 

SAFÍR20 sjóðurinn er hýstur og rekinn af Stefni sem er eitt stærsta eignastýringarfélag landsins og hluti af samstæðu Arion banka. Stefnir starfar á grundvelli starfsleyfis frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.  Aparta Iceland ehf. og Stefnir hf. eiga með sér samstarf til að tryggja góða þjónustu við sameigendur SAFÍR20 á þeim tíma sem samningur um sameign er í gildi.

Ávinningur Safír Bygginga felst í því að gera fleirum kleift að eignast íbúð á Orkureitnum og stuðla um leið að virkum og stöðugum fasteignamarkaði. Með því að taka þátt í fjármögnun íbúða skapa Safír Byggingar ný tækifæri fyrir bæði kaupendur og byggingaraðila – og styrkja markað þar sem traust og jafnvægi ríkir. Þannig fjölgum við möguleikum á fasteignamarkaði.
Ávinningur Stefnis og Aparta Iceland felst í að reka og þjónusta nýjan sjóð, sem ávaxtast í samræmi við verðþróun á íbúðarmarkaði og að teknu tilliti til húsaleigu.

Leigan er greidd mánaðarlega. Gjalddagi er 1. hvers mánaðar og eindagi 10. hvers mánaðar.

Daglegt viðhald íbúðar er á ábyrgð kaupanda, líkt og í hefðbundnum fasteignaviðskiptum. SAFÍR20 tekur hlutfallslega þátt í kostnaði vegna framkvæmda sem samþykktar eru af húsfélagi til samræmis við lög um fjöleignarhús, en ekki kostnaði vegna breytinga sem kaupandi ákveður sjálfur, svo sem vegna endurnýjunar innréttinga, málningarvinnu eða viðgerða umfram eðlilegt slit. Til skoðunar getur komið þátttaka í umfangsmeiri framkvæmdum á íbúð undir því sem skilgreint er sem fyrirfram samþykktar framkvæmdir í samningi milli aðila.

SAFÍR20 er meðeigandi íbúðar til samræmis við eignarhlutdeild/framlag SAFÍR20, en kaupandi hefur full umráð íbúðarinnar. Kaupandi stendur undir öllum almennum gjöldum tengdum íbúðinni. SAFÍR20 greiðir þó hluta af fasteignagjöldum í samræmi við eignarhlutfall.

Samningar við SAFÍR20 gilda almennt í 3–10 ár. Þú getur þó krafist þess að kaupréttur sé nýttur hvenær sem er á samningstímanum. Ef kaupréttur er nýttur innan 36 mánaða frá undirritun samnings ber kaupandi allan kostnað SAFÍR20 vegna upphaflegra kaupa og skal endurgreiða umsýslukostnað vegna upphaflegra kaupa á íbúð.
Ef kaupandi vill halda eigninni lengur en 10 ár, þarf uppgjör við SAFÍR20 að eiga sér stað með endurfjármögnun eða með öðrum sparnaði í kjölfar nýtingar á kauprétti.

Við sölu eignarinnar fer fram uppgjör við SAFÍR20. Við uppgjör fær kaupandi þá sinn hlut af söluandvirðinu samkvæmt eignarhlutfalli, að frádregnum eftirstöðvum fasteignaláns, hlutfallslegum sölukostnaði, ógreiddri leigu og öðrum ógreiddum kröfum SAFÍR20, eftir því sem við á.

Ef eignin hefur hækkað í verði, fær kaupandinn hagnað í samræmi við sinn hlut – ef hún lækkar, deilist tapið á sama hátt. 

Markmiðið með þessum tímaramma er að gefa kaupanda svigrúm til að byggja upp eigið fé í fasteigninni. Of stuttur tími myndi draga úr því tækifæri, en of langur myndi takmarka sveigjanleika. Tímabilið 3–10 ár telst eðlilegt og raunhæft miðað við almenna endurfjármögnun íbúðarhúsnæðis á Íslandi.

Við kaup íbúðar leggur kaupandi fram allt að 80% af kaupverði og SAFÍR20 leggur fram allt að 20% framlag. Þetta framlag fer beint inn í kaupin og greiðist til seljanda íbúðar við kaupsamning.

Já. Kaupandi fer í greiðslumat hjá banka eða lífeyrissjóði eins og venjulega, sem veita fasteignalán, sem tryggt er með fyrsta veðrétti í allri íbúðinni (100% eignarhluta), en SAFÍR20 fær 2. veðrétt í íbúðinni samkvæmt tryggingarbréfi, til tryggingar efndum samkvæmt sameignarsamningi og leigusamningi. Þó þarf að taka mið af því að mismunandi er eftir lífeyrissjóðum hvort að veitt séu sjóðsfélagalán vegna íbúða sem er eigu einstaklings og lögaðila líkt og SAFÍR20 er.

Já, þú getur endurfjármagnað fasteignalánið þitt hvenær sem er á samningstímanum, svo lengi sem SAFÍR20 samþykkir það. SAFÍR20 getur aðeins hafnað slíkri beiðni ef gildar og málefnalegar ástæður liggja fyrir.

Já, kaupandi hefur kauprétt sem hann getur nýtt til að greiða upp framlag SAFÍR20 hvenær sem er eftir afhendingu eignarinnar. 

Tilkynna þarf um slíka greiðslu skriflega. Þetta gefur kaupanda möguleika á að minnka skuldbindingar á samningstímanum.

Fyrir þá sem eru að kaupa fasteign í fyrsta skiptið getur SAFÍR20 hentað vel til þess að taka skrefið inná fasteignamarkaðinn í fleiri en einu skrefi. Þannig draga úr skuldsetningu í upphafi og að sama skapi að deila áhættu vegna verðþróunar fasteigna með sjóðnum.

Kaupandi hefur forræði yfir eigninni, en breytingar sem ganga lengra en venjulegt viðhald þurfa samþykki SAFÍR20. SAFÍR20 getur ekki hafnað breytingum á íbúðinni nema gildar ástæður liggi fyrir.
Allar framkvæmdir, sem og venjulegt viðhald, eru á kostnað kaupanda.

Já, það er heimilt að leigja út eignina, að hluta eða í heild. Kaupandinn heldur öllum leigutekjum og ber fulla ábyrgð á eigninni meðan á útleigu stendur, þar á meðal vegna viðhalds, trygginga og hugsanlegs tjóns.

Við gerð samnings við SAFÍR20 eru undirritaðir tveir samningar:

  1. Sameignarsamningur, sem skilgreinir réttindi og skyldur beggja aðila, þ.e. kaupanda og SAFÍR20, og hvernig sameignarhaldinu er háttað.

  2. Leigusamningur, sem fjallar um fullan afnotarétt kaupanda og tekur á greiðslum fyrir afnot og notkun eignarinnar meðan á samningstíma stendur.

Auk þess gefur kaupandi út tryggingarbréf til SAFÍR20, til tryggingar efndum samkvæmt sameignar- og leigusamningi.

Þannig eru bæði eignarhald og afnot skýr og gagnsæ fyrir alla aðila frá upphafi.

Fyrir kaup:

Safír Byggingar annast samskipti vegna kaupa SAFÍR20 á fasteigninni. Kaupendur geta haft samband beint við fasteignasala verkefnisins eða þjónustuteymi Safír Bygginga sem leiðbeinir um ferlið, samningsatriði og möguleg næstu skref.

Eftir kaup:

Rekstraraðili sjóðsins SAFÍR20 er Stefnir hf. sem hefur gert samstarfssamning við Aparta Iceland ehf. sem sér um þjónustu við kaupanda á þeim tíma sem íbúðin er í sameign.  Hægt er að hafa samband við Aparta í gegnum heimasíðu þeirra www.aparta.is.

Með SAFÍR20 er áhætta kaupanda minni en í hefðbundnum fasteignakaupum, þar sem hann leggur fram minna eigið fé. SAFÍR20 tekur þátt í áhættunni með því að leggja fram allt að 20% og ber þar með sinn hluta af hugsanlegu tapi ef fasteignaverð lækkar. Kaupandinn heldur þó öllum ávinningi af sínum eignarhlut ef markaðsvirði hækkar.

Eiginfjárframlag SAFÍR20 sem nemur kaupverði sjóðsins á sínum hlut af íbúðinni er ekki verðtryggt.

Fyrir afnot af hlut SAFÍR20 greiðir kaupandi fasta mánaðarlega leigu sem er skilgreind í krónum í samningi. Upphæðin miðast við framlag SAFÍR20 og er verðtryggð á samningstímanum.

Við lok samnings fer fram uppgjör á eignarhlut SAFÍR20 (eða við sölu). Ógreidd leiga, ef einhver er, er gerð upp eins og hver önnur ógreidd krafa. Kaupandinn getur þá annað hvort:

  • selt eignina og gert upp við SAFÍR20 samkvæmt eignarhlutfalli,

    eða

  • endurfjármagnað eða nýtt annan sparnað og keypt út hlut SAFÍR20 að fullu með nýtingu kaupréttar.
  • Í báðum tilvikum hefur kaupandinn fullan ráðstöfunarrétt og nýtur ávinningsins af sínu uppsöfnuðu eigin fé yfir samningstímann.

Festu íbúðarverðið með 2% staðfestingargjaldi

Hægt er að festa verð íbúða í svokölluðum hluta D2 á Orkureitnum með því að greiða 2% staðfestingargjald sem heldur verði óbreyttu til afhendingar 2026. Það gefur tíma og aukið svigrúm – og þú tryggir þér draumaíbúðina á undan öðrum.

Hafa samband við fasteignasala

Að eignast heimili er stórt skref.

SAFÍR20 tekur það skref með þér.

Safír, stefna og áherslur

SAFÍR Byggingar ehf. er þróunar- og verktakafyrirtæki sem þróar byggingarreiti, byggir og selur eigin íbúðir og atvinnuhúsnæði.

Fyrirtækið var stofnað árið 2021 og er fyrsta verkefni þess að byggja 436 íbúðir og atvinnuhúsnæði á Orkureitnum í Reykjavík. Mannauður fyrirtækisins hefur yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á íslenskum byggingamarkaði og hefur stýrt og haft yfirumsjón með umfangsmiklum og fjölbreyttum byggingaverkefnum bæði hér á landi og utan landsteinanna.

Framkvæmdastjóri og stærsti hluthafi SAFÍR bygginga hefur áður stýrt og verið hluthafi í umfangsmiklum byggingaverkefnum í Reykjavík eins og uppbyggingu á íbúðum og atvinnuhúsnæði í Efstaleitinu í Reykjavík og lokaáfanga Skuggahverfisins.

Gildi Safírs

Alúð

Við vinnum verkefni okkar af alúð. Við nýtum
ólíka styrkleika okkar til að ná hámarksárangri
og standa við það sem við berum ábyrgð á.

Framsækni

Við leggjum áherslu á framsækni. Við sköpum saman starfsumhverfi og starfsmenningu sem hvetur til starfsþróunar og endurmenntunar. Við leitum sífellt nýrra leiða við að skapa þekkingu til að ná markmiðum okkar.

Samvinna

Góð samvinna er leiðarljós okkar og lykilforsenda þess að ná góðum árangri. Við berum virðingu fyrir ólíkum þörfum og skoðunum og leggjum áherslu á heiðarleg samskipti. Þannig náum við að vaxa saman.